|
|
07.08.2009 23:03:48 / sunsy
...er alltaf hægt að fá það út að ALLT sé alltaf MÉR að kenna ! Að það hafi alltaf verið ÉG sem sagði eitthvað vitlaust? Að það hafi verið ÉG sem gerði eitthvað rangt ! Það er bara alltaf þannig ! Eitthvað gerist og það er sko POTTÞÉTT Sunnu að kenna !!
...óþolandi...
»
24.11.2008 22:00:29 / sunsy
»
10.11.2008 22:53:22 / sunsy
»
24.09.2008 17:09:06 / sunsy
»
29.05.2008 22:52:33 / sunsy
Jarðskjálfti...
...varð á milli Hveragerðis og Selfossar rétt um 4 leytið í dag. Skjáltinn mældist á bilinu 6,1 - 6,3 á Richter-kvarða. Þetta er víst skjálfti á sömu stærðargráðu og var hérna á Hellu árið 2000. ,,Því miður" fann ég ekki þann skjálfta þar sem ég var stödd á Spáni. Og í þetta sinn fann ég náttúrlega ekki þennan sterka skjálfta þó að hann hafi vissulega fundist hérna á Hellu. Margir voru mjög hræddir og ég bara skil ekki þessa tilfinningu því ég hef ekki upplifað þetta áður, hef ekki horft á húsið mitt í rúst þar sem búið var að taka mest til þegar við komum aftur heim. Samt verð ég að segja að ég er svona ,,hálfsvekkt" yfir því að hafa ekki fundið þessa skjálfta svona sterka, bæði árið 2000 sem og núna. Auðvitað skil ég að allir verða frekar pirraðir þegar ég segi þetta en þar sem ég hef nú svolítinn áhuga á jarðfræði og því sem er að gerast í jörðinni þá er þetta svekkjandi. Auðvitað langar mig ekki að standa inní húsi sem er við það að hrynja, en að fá að standa bara úti og finna þennan gífurlega kraft sem hristir jörðina ! Það er ábyggilega rosalegt ef maður getur hugsað þetta svona eins og ég...en bara pælingar. Dagurinn í dag snerist að mestu leyti um þetta, við lokuðum lauginni og fengum þess vegna bara frí og fórum ég og mútta í mat hjá Guddu og svo erum við bara búnar að sitja hérna í eldhúsinu að spjalla. Pabbi kemur heim frá Þýskalandi á morgun og svo er vika í spán. En svona önnur jarðskjálftapæling....mér finnst bara rosalega skrítið að skjálftarnir árið 2000 og núna í dag voru að mjög svipaðri stærð, riðu báðir yfir um 4 leytið, riðu báðir yfir þegar það var sól og blíða og árið 2000 var ég á Costa del Sol og núna eftir viku er ég aftur að fara á Costa del Sol og meira að segja á sama hótel !!! Verð nú bara að segja að mér finnst þetta bara frekar FREEKY ! En ég er farin út að labba  See you later
»
28.05.2008 22:13:15 / sunsy
»
27.05.2008 23:00:44 / sunsy
Jeminn var ég hrædd?... ...Birna var að enda við að lita á mér hárið og ég var sko á nálum allan tímann. Þar sem ég þjáist af mikilli fullkomunaráráttu í sambandi við hárið á mér þá tók þetta mikið á andlega ! En þetta hafðist nú þótt ég sé frekar mikið dökkhærð en það lagast og svo klippti mamma aðeins og ég var bara nokkuð sátt við breytinguna. Ákvað að framkvæma "heimalitun" þegar ég veit að það að lita á mér hausinn kostar svona 10 þúsund kall ! og þar sem ég er nú að halda til Spánar eftir aðeins 9 DAGA    þá tými ég ekki að borga svo mikið fyrir eitthvað sem á eftir að upplýsast strax ! Annars var annar viðburðalítill vinnudagur í dag, en veðrið var samt æðislegt og er enn  Elska þegar er svona bjart langt frameftir kvöldi  Annars lítið að frétta...eins og vanalega, þannig að ég er að spá í að hætta þessu bulli núna og koma mér út í göngutúr áður en ég fer að sofa ! See you later ! P.s. Hafiði séð nýjasta myndbandið með Leoncie? "Enginn þríkantur hér" ? Það er AÐEINS of fyndið ! haha mæli samt með því til að brosa og lífga uppá daginn
»
26.05.2008 22:45:41 / sunsy
Vóvóvó sjáið bara hvað ég er orðin dugleg að blogga....það virðist samt engin vera að skoða þessa síðu lengur þar sem kommentin eru ekki að hrúgast inn eins og ég bjóst við, eeen það vonandi kemur síðar  En semsagt enn einn vinnudagur á enda. Jeminn, þetta var sko einn af erfiðari dögunum ! Ekki það að það hafi verið eitthvað brjálað að gera, enda ekki hægt að búast við því hérna á Hellunni, en váá hvað ég var þreytt ! Skil nú ekki alveg eftir hvað en ég átti svo bágt með mig að mig langaði að grenja ! Augun vildu bara EKKI haldast uppi. Þannig að í matartímanum tók ég góðan göngutúr til að reyna að hressa mig upp, það virkaði..ekki  Annars er dagurinn bara búinn að vera fínn, byrjaði á því að fara í ræktina og svo í golf með Birnu. Talandi um það ! Þessir vallarstarfsmenn þarna í golfklúbbnum...ég á bara ekki til orð ! Ég held að þeir sitji um mig og alltaf þegar ég ákveð að koma í golf, fara þeir að vinna á öllum brautum og öllum green-um sem ég er á !! Hélt ég yrði ekki eldri í morgun ! En jáhh...góð saga  Pabbi fór svo til Þýskalands í nótt með einhverjum köllum í vinnunni, þetta er svona ferð sem kallast "vinnuferð"  hehe ! Jæja er þetta ekki gott í bili? Ef einhver er að lesa þetta þá má hann alveg endilega kvitta sko  það má.... ----> eftir 10 daga verð ég á huggulegum veitingastað á Costa del Sol
»
25.05.2008 23:24:43 / sunsy
Jæja þá er enn ein helgin liðin. Á föstudaginn var bara unnið á fullu til 9 og síðan var skellt aðeins í sig og haldið í útskriftarpartý hjá Árna. Ætlaði mér nú aldrei að stoppa eitthvað lengi en eins og vanalega brást það og mín ekki komin heim fyrr en rúmlega 5 !  En laugardagurinn fór svo líka í útskriftarveislu hjá henni Fjólu minni, til hamingju með það elsku vinkona ! Um hálf 7 skelltum við Birna okkur svo heim og buðum nokkrum stelpum yfir og horfðum á Eurovision. Mér fannt okkur ganga nú bara alveg ágætlega, ég var nú búin að lofa sjálfri mér að stíga ekki fæti aftur á Danmörk ef við fengjum ekki 12 stig frá þeim og auðvitað stóðu Danir sig og gáfu okkur fullt hús stiga !  Annars var voðalega lítið að gerast á Hellu...get ekki sagt að það komi eitthvað á óvart....get ekki beðið eftir að komast eitthvað í smá "líf" ! Þannig að eftir langan rúnt var farið að sofa að verða hálf 5  Sunnudagurinn fór svo bara í leti, Birta og krakkarnir kíktu í heimsókn og við eyddum mestum deginum á pallinum að sleikja sólina !  Ohh...get ekki beðið eftir að fara til Spánar ! aðeins um 10 dagar  en jæja Grey's er að byrja Heyrumst - sjónvarpssjúklingurinn -
»
19.05.2008 20:25:07 / sunsy
....alltof langt síðan ég skrifaði síðast !  En já semsagt þá er mín bara útskrifuð og búin með skólann. Er á fullu að vinna núna í sundlauginni á Hellu og er það nú bara svona lala...þrátt fyrir alveg ómannlegar vaktir  En ég fæ nú engu ráðið um það frekar en fyrri daginn ! Hvað hefur svo gerst þessa fyrst tæpa 5 mánuði ársins?? Voðalega lítið verð ég að viðurkenna...jújú þarna voru afmæli, þorrablótið auðvitað  , páskarnir og svona þetta helsta bara. Svo í maí, þann 5, varð ég svo 21 árs ! vá get ekki trúað því hvað tíminn líður hratt ! ótrúlegt !!! Strax orðið ár síðan ég og Allý héldum uppá tvítugs afmælið með stæl :þ Framundan í sumar er svo margt og mikið ! Ég byrja nú á því að fara til Spánar að ná mér í smá sól ! Vá get ekki beðið eftir að liggja bara í leti allan daginn og hreyfa mig ekki nema til þess að teygja mig í kokteilinn  haha ! Það verður ekkert smá stuð og ég er eins og 6 ára krakki að bíða eftir jólunum ég er svooo spennt !!  En svo er náttúrlega útilegur, "efri-Holta" hátíð, ÞJÓÐHÁTÍÐ !!    vááá verður það geðveikt !! Nú og svo er framtíðin eftir það alveg óráðin  veit ekkert hvað ég á að gera ! Það eru svona nokkrir möguleikar, gæti farið til Svíþjóðar, nú eða í einhvern skóla eða bara flytja í bæinn að vinna....veit í alvöru ekkert hvað ég ætla mér...og svona ykkur að segja er ég að verða geðveik á því !!! En jæja ég ætla nú að reyna að fara að endurvekja þetta blogg aðeins...sjáum hvernig það gengur...kvitt takk..ef einhver er ennþá að skoða þessa síðu  Sunsy
»
21.12.2007 00:54:58 / sunsy
Jæja ! Ég sagðist ætla að blogga fyrir útskrift og það er ekki seinna vænna en að gera það núna þar sem útskriftin er á morgun úff, þetta er í alvörunni að gerast !! Kláraði prófin með stæl þetta árið og fékk meira að segja tvær 10 nokkuð ánægð með barasta hehe en jámm semsagt þá er ég búin að vera að jólastússast síðustu viku, er búin að gera öll mín jólakort, búin að kaupa alla pakka og pakka inn og lítið eftir nema að bíða eftir aðfangadegi Þetta líður sko ekkert smá hratt ! finnst ég nýbúin að halda uppá tvítugsafmælið mitt og það var sko í MAÍ ! Og nú er útskrift á morgun, tiltekt og afmæli hjá afa á laugardaginn, þorláksmessa á sunnudaginn með tilheyrandi hefðum og svo bara aðfangadagur ! þetta verður enga stund að líða og svo verða jólin komin og farin áður en við náum að stoppa og átta okkur á því hvað er eiginlega að gerast, og fyrr en varir er ég orðin 30 eða eitthvað hehe Í dag, og svona síðustu daga, erum við búin að vera að undirbúa stúdentaveisluna, hún verður í Golfskálanum og ca. 40 manns boðið. Búin að kaupa mér útskriftarkjól, húfan komin í hús, skartgripir og skór á sínum stað og bara allt að verða ,,ready" Eins og ég sagði nú í síðustu færslu svona fyrir ykkur sem nennið að lesa þá var ég nú svoldið smeik við þetta allt saman, vera að klára og ekki með nein plön fyrir framtíðina og vita svona bara nokkurn veginn EKKERT í minn haus ! En verð samt að viðurkenna að núna er ég orðin bara frekar spennt yfir þessu öllu Þegar maður sér hvað salurinn er orðinn fínn, hvað allir eru að leggja sig fram við að hjálpa við undirbúninginn, maturinn allur að verða tilbúinn og allt einhvern veginn að falla á réttan stað....þá er þetta bara helvíti spennandi  En jæja þar sem klukkan er nú að verða 1 og ég þarf að vera ELDhress, ELDsnemma í fyrramálið og mæta voðalega sæt og ,,ómygluð" í myndartöku þá er ég nú barasta að spá í að fara að leggja mig Vil þakka kærlega fyrir góðar undirtektir í kvittun í síðustu færslu og nú býst ég við sama áhuga á að kvitta og síðast Ef ég blogga ekki fyrir jól þá bara óska ég ykkur gleðilegra jóla og vona að þið hafið það gott yfir hátíðirnar ! Sunsy....... ,,stúdent" 
»
03.12.2007 20:46:32 / sunsy
»
18.10.2007 21:09:11 / sunsy
»
22.08.2007 15:34:02 / sunsy
»
07.05.2007 01:26:10 / sunsy
Jæja þá er loksins kominn maí og það þýðir bara eitt að minns á
AFMÆLI   jamm ég er bara orðin tuttugu ára....20
ára.....tvítug !! shit sko...þetta er allt eitthvað svo asnalegt
haha !
En já, dagurinn byrjaði á afmælisgjöf frá nánustu
fjölskyldu og fékk ég m.a. nýtt golfsett, nýja myndavél,
gjafabréf til Ólafar, hring, glös, föt og ég veit ekki hvað og
hvað. Hélt nefnilega svona smá "brunch" (árbít fyrir þá
sem ekki eru það færir í enskunni ) en síðan um
kvöldið var sko PARTÝ ALDARINNAR ! Ég og Allý
skyttusystir semsagt héldum uppá afmælið okkar saman og var það
haldið á Brúarlundi ! Við vorum með FULLT af mat, FULL af fólki og
auðvitað FUUUUULLT af áfengi hehe Ekki var svo verra að
heyra frá Perú í henni Írenu minni ! vá ég varð svoooo ánægð !!
TAKK Ég verð nú bara að segja að þetta tókst allt saman bara
svona líka vel og ég gæti bara ekki verið ánægðari með þetta allt
saman ! Fengum alveg fullt af gjöfum, MIKIÐ af áfengi eitthvað um
8-9 flöskur á kjaft, úr, listaverk, skartgripi, hehemm....eitthvað
meira "dót" haha og svo fullt, fullt meira....vá sko bara
rosalega mikið TAKK FYRIR MIG ! ótrúlegt hvað ég fékk mikið !!
TAKK
Svo núna í dag erum við Skytturnar 3 ásamt Drífu og Helgu búnar
að vera að þrífa og bara vafrast....var að koma inn frá
Unnsý...vorum að horfa á Desperate og OC en nú kemur að ástæðu þess
að ég bloggaði.....kom nefnilega inn og kveitki ljósin og sá ALLAR
gjafirnar sem ég fékk í gær og ég er ekki að grínast...mig langaði
bara til þess að gráta sko ! Ég fór að skoða allt aftur sem ég
hafði fengið og í alvöru þá sá ég bara þá hvað ég hef það í alvöru
GOTT ! Ég á svo rosalega, ótrúlega, fáranlega mikið af frábærum
vinum sem virkilega þykir vænt um mig ! Og svo ég hljómi
nú smá væmin þá bara gæti ég ekki verið heppnari, hefur sjaldan
liðið jafn vel að vita af öllu þessu góða fólki sem hugsar til
manns ! Elska ykkur öll svo ótrúlega mikið !!!! Ætla nú að hætta
þessu væmnistali áður en ég fer sjálf að grenja...varð bara að láta
ykkur vita að ég met þetta svo mikils !!
Þetta er búin að vera frábær helgi og æðislegasti afmælisdagur
til þessa ! Takk fjölskyldan mín, skytturnar mínar Allý og Unnsý,
Sigrún, Drífa og Helga, Hugrún og AAAAALLLLLLLLIIRRR sem hjálpuðu
mér að gera þessa helgi ógleymanlega eða hugsuðu til mín á
afmælisdaginn ! Þið eruð æðisleg !!
Sunsy - afmælisbarn 
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
Heimsóknir
Í dag: 13 Alls: 25835
|